Ferð Ágústu og EB til Malasíu sumarið 2008
04.08.2008 10:58:24 / ferdin

KLTæland - Kuala Lumpur - Borneo - Kuala Lumpur

:) Ferðin hefur verið MJÖG skemmtileg. Eftir að hafa verið í KL í nokkra daga fórum við með Gunný og fjölskyldu til Tælands. Eftir að hafa verið einn dag í Bankok fórum við á  á æðislega fallegri strönd á Krabi á hótel Nantra - sem er svona Bungalow eiginlega eitt einbýlishús á mann með einkasundlaug og einkaströnd.  Við lifðum þar eins og prinsessur í sól og hita og nutum lífsins í nokkra daga.
Gunný og & fóru svo til Ástralíu og við EB og mamma fórum á fallega strönd Ao Nang sem er líka á Krabi , við fórum á alveg meiriháttar fallegt  hotel Ao nang orchid resort.  http://aonangorchid-resort.com/    eftir að hafa verið einar þar í viku kom pabbi til okkar. Fórum meðal annars í fílasafari og silgdum til eyjarinnar Phi Phi þar sem við snorkluðum í fallegasta neðansjávar umhverfi sem við höfum séð. aljört æði!!!   http://phi-phi.com/

KL ( Kuala Lumpur )
Eftir Tæland fórum við til Kl og vorum þar í nokkra daga.  Skoðuðum tvíburaturnana og fórum í Fugladýragarðinn og fleira og fleira....

Borneo
Við vorum á Borneo í 4 daga. http://www.sepilokjungleresort.com/
Við fórum svo í nokkra daga í frumskógarferð til Borneo. Við gistum í frumskoginum    http://sukau.com/ Þessi ferð er ævintýri líkust og varla að nokkur trúi því sem við sáum þarna.  Við bjuggum fyrst  á Sepilok natur restort við ána Kinabatang.  Borneo er þriðja stærsta eyja heims og þar búa dýr sem eru í útrýmingarhættu. Frumskógurinn þarna er verndaður og þarna sigldum við í nokkra daga með innfæddum  leiðsögumanni meðfram  ánni bæði snemma morguns - miðjan dag og í nætursiglingum til að sjá sem flest dýr....við erum að tala um apa, fíla, krókódíla, kingfisher fuglinn, phyton slöngu, eðlur ..... 
Setjum inn myndir fljótlegahttp://www.borneoecotours.com/1borneo/



Meira næst.....

mamma og EB


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 14:06:47 / ferdin

Erum komnar

Erum komnar til kualalumpur en erum að fara til tælands en fyrst misstum vid af flugvelinni til krabi(i taelandi):$tha vorum vid med cristop og gunny svo ad vid letum breita midanum svo ad vid forum sama dag bara til bankok hofudborgina i taelandivorum thar i einn dag. naesta dag flugum vid til krabi vorum vid kollud upp vegna thess ad vid vorum of seinhehe forum a hotel her a krabi sem heitir nantara vid skiptum um hotel a morgunn ;):lol::d8)




EBH & Agusta;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 17:14:46 / ferdin

Erum bara að fara

Við erum að fara á laugardaginn :dþaðer alltof stutt þangað til8| en við erum búinn að pakka og allt þannig við erum klárar í slaginn;)




kær kveðja

EB & ÁUG




» 0 hafa sagt sína skoðun

12.05.2008 11:24:44 / ferdin

MALASÍA - undirbúningur fyrir ferðina....

Við þurfum að láta sprauta okkur eins og við gerðum þegar við fórum til Kína 2001.
Það er ráðlegt vegna þess að við erum að fara  meðal annars til Kambodíu. 
Við þurfum að fara að panta tíma á heilsugæslustöðinni.  8)8):lol::lol:
Í Borneo sofum við í moskítótjaldi ....kúl ...:s

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 23:27:57 / BlogCentral

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

  • Hæhæ Ný síða hjá okkur erum að búa til síðu um ferðina okkar til Kuala Lumpur,Tælands,Borneo og Kambódíu í sumar. Við eigum eftir aða skrifa meira:d;)
    Keðja Emiliana & Ágústa




  •  


    » 2 hafa sagt sína skoðun


    Klukkan
    Dagatal
    febrúar - 2010
    S M Þ M F F L
    123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    28
    FyrriNæsti
    Heimsóknir
    Í dag:  3  Alls: 1478